Versnandi þrek níu ára barna

Offita barna er heilsufarsvandamál víða um heim, einnig hér á …
Offita barna er heilsufarsvandamál víða um heim, einnig hér á landi. mbl.is

Níu ára börn á Íslandi hreyfa sig of lítið og stúlkur á þessum aldri hreyfa sig minna en drengir. Aukin fitusöfnun barnanna og lélegt þrek þeirra tengist hærra BMI-gildi foreldra, lægri tekjum föður og reykingum móður.  Þetta kemur fram í nýrri doktorsrannssókn í íþrótta- og lýðheilsufræði.

Mánudaginn 15. ágúst nk. fer fram doktorsvörn við Íþrótta- tómstunda- og þroskaþjálfadeild Háskóla Íslands. Þá ver Kristján Þór Magnússon, lýðheilsufræðingur doktorsritgerð sína þar sem fjallað er um hreyfingu og þrek sjö og níu ára gamalla barna á Íslandi. Þetta er fyrsta doktorsvörnin í íþrótta- og heilsufræði við íslenskan háskóla.

Í fréttatilkynningu segir að faraldsfræðilegar rannsóknir hafi sýnt að þróun ofþyngdar, offitu og hreyfingarleysis meðal barna og unglinga undanfarna tvo áratugi hafi almennt verið neikvæð og Ísland sé þar engin undantekning.

Doktorsritgerðin byggist á niðurstöðum tveggja rannsóknarverkefna sem unnin voru árin 2003-2004 og  2006-2008 í 24 grunnskólum á landinu.

Meginniðurstöður rannsóknar 1 sýndu samkvæmt mælingum hröðunarmæla að einungis lágt hlutfall níu ára barna uppfyllti ráðleggingar um daglega hreyfingu af miðlungs og mikilli ákefð árið 2003, þar sem stúlkur hreyfðu sig almennt séð minna en drengir. Slakara þrek þátttakenda tengdist aukinni fitusöfnun undir húð, því að vera stúlka frekar en drengur, að búa í Reykjavík frekar en í þéttbýli eða dreifbýli á Norðausturlandi, og reykingum og lægri tekjum föður.

Aukin fitusöfnun undir húð þátttakenda hafði tengsl við hærri BMI-gildi foreldra, reykingar móður sem og litla hreyfingu móður og þátttakendanna sjálfra.

Meginniðurstöður doktorsritgerðarinnar voru þær að þótt aðgerðir sem gripið var til yfir tveggja ára íhlutunartímabil innan þriggja reykvískra skóla hafi skilað aukinni hreyfingu meðal barna á skólatíma, þá hafði slík íhlutun lítil eða engin áhrif á hreyfingu barna utan skólatíma, þrek þeirra eða holdafar.

Einnig var hreyfing og þrek 9 ára reykvískra barna minna árið 2008 samanborið við 2003.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert