Ísinn á norðurheimskautinu gæti horfið sumarið 2015
Bráðnun íss á norðurheimskautinu er svo hröð að ísinn gæti hugsanlega horfið algerlega sumarið 2015 að mati eins fremsta sérfræðings Breta á sviði haffræði Peters Wadham, prófessors við Cambridge-háskóla. Hann telur þó að ís myndi áfram myndast á svæðinu að vetri til en bráðnun hans að sumri til yrði til þess að auka mjög á siglingar um svæðið og vinnslu á náttúruauðlindum eins og olíu.
Að mati Wadham hefur fyrri spám yfirsést hversu hratt loftlagsbreytingar stuðla að því að ísinn á norðurheimskautinu þynnist. Gangi spá hans eftir drægi það ennfremur verulega úr möguleikum ísbjarna til þess að veiða sér til matar sem aftur gæti leitt til útrýmingar þeirra. Hinn möguleikinn væri að þeir leituðu í auknum mæli upp á land til þess að leita sér að fæðu.
Fréttavefur breska dagblaðsins Daily Telegraph segir frá þessu í dag.
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
























