Aðgerðir til að vernda ísbjörninn

Ísbjörninn er hættuleg en jafnframt mikilfengleg skepna. stækka

Ísbjörninn er hættuleg en jafnframt mikilfengleg skepna. Reuter

Umhverfisráðherra Kanada, Peter Kent, sagði í dag að ísbjörninn væri nú á lista yfir dýrategundir sem sérstakar áhyggjur þyrfti að hafa af og sagði að ný áætlun um að vernda tegundina yrði sett í gang á næstu þremur árum.

„Í Kanada eru heimkynni um tveggja þriðju hluta ísbjarnastofnsins og á okkur liggur sérstök ábyrgð þegar kemur að því að vernda ísbjörninn,“ sagði ráðherra meðal annars.

Hann sagði áætlunina þurfa að miða að því að minnka þá ógn sem björnunum stendur af mannfólkinu en tók þó fram að þjóðflokkum eins og Inúítum yrði ekki bannað að veiða birnina sér til matar.

Samkvæmt skýrslu kanadískra stjórnvalda eru fjórir af þrettán undirstofnum í mikilli hættu vegna hnattrænnar hlýnunar og ofveiða, en þeir telja um 4.330 dýr af 15.500. Þykir líklegt að stofnanir fjórir muni minnka um 30% næstu 36 árin en gert er ráð fyrir að stærð hinna stofnanna haldist stöðug.

Um 534 ísbirnir eru veiddir árlega í Kanada samkvæmt opinberum tölum en meirihluti íbúa nyrsta hluta landsins voru mjög á móti því á árunum 2008-2010 að tegundin væri sett á lista yfir dýr í útrýmingarhættu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Tækni og vísindi »

Milljón klámneytendur afhjúpaðir

Í gær, 19:46 Yfir milljón notendur klámsíðunnar Youporn fengu þau ótíðindi í dag að hakkarar hefðu gert árás á síðuna til að komast yfir tölvupóstföng þeirra og lykilorð og birt upplýsingarnar á netinu. Meira »
Stofnfrumur.

Stofnfrumur virkuðu á Parkinsons

í gær Apar, sem þjást af Parkinsonssjúkdóminum, hafa sýnt batamerki eftir að japanskir vísindamenn komu stofnfrumum manna fyrir í heila þeirra. Aparnir voru afar illa haldnir, útlimir þeirra hristust og þeir áttu í erfiðleikum með að stjórna líkama sínum. Meira »

Ætlað að hamla gegn ólöglegu efni

Frá undirskrift samningsins í dag
í fyrradag Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands og sendiherra Bretlands, Ian Whitting, voru viðstaddir undirritun samkomulags íslenska hátækni- og nýsköpunarfyrirtækisins Videntifier Technologies og breska fyrirtækisins Forensic Pathways í dag. Meira »

Eyrnamergur bannaður en opin sár í lagi

Notendur eru duglegir að benda stjórnendum Facebook á óæskilegt efni.
21.2. Bannað er að birta myndir af þvagi, saur, ælu, sæði og eyrnamerg á Facebook. Leyfilegt er að sýna djúp sár og höfuðkúpubrot svo lengi sem innyfli sjást ekki. Viðmiðunarreglur sem Facebook styðst við um hvað má og hvað ekki hafa verið birtar. Meira »

Ræktuðu upp úr 30.000 ára ávexti

Plantan Silene stenophylla
20.2. Rússneskum vísindamönnum hefur tekist að rækta plöntur úr vef ávaxta sem talið er að íkornar hafi safnað í sífrera fyrir yfir 30.000 árum. Ávextirnir fundust grafnir í bökkum Kolmya-árinnar í Síberíu, þar sem víðtæk leit hefur jafnframt verið gerð að beinum mammúta. Meira »

Ný gerð reikistjörnu fundin

Ný fjarreikistjarna fannst með hubble-sjónaukanum
21.2. Með Hubbles-sjónauka NASA og ESA hafa stjörnufræðingar fundið nýja gerð reikistjörnu, vatnaveröld umlukta þykkum gufukenndum lofthjúpi. Meira »

Fagnar 50 ára geimferðaafmæli myndskeið

John Glenn minnist hálfrar aldrar geimferðaafmæli
21.2. Bandaríski geimfarinn John Glenn minntist þess í dag að hálf öld er liðin frá því að hann fór þrisvar sinnum umhverfis jörðu á geimfari sínu á fimm klukkustundum og á um 27358.848 kílómetra hraða á klukkustund. Hann var fyrsti Bandaríkjamaðurinn til að fara umhverfis jörðina á geimfari. Meira »

Ólæs en tísta daglega

Foreldrar leikskólabarna í Frakklandi fylgjast með tísti barna sinna á Twitter
20.2. Frönsk leikskólabörn á Albert-Camus leikskólanum í Talence í suðvesturhluta landsins setja daglega inn færslur á Twitter samskiptavefinn án þess að kunna að lesa né skrifa. Meira »

eBay blæs út í Bretlandi

20.2. Bretar nýta sér í auknum mæli uppboðsvefinn eBay og er svo komið að markaðurinn þar í landi vex hraðast á heimsvísu með tilliti til notkunar uppboðsvefjarins. Meira »

Gönguhraði tengist elliglöpum

Silvio Berlusconi fer hér fremstur í hópi þjóðarleiðtoga í göngutúr á ströndinni í Georgíu.
16.2. Gönguhraði kann að vera vísbending um það hversu líklegt er að fólk fái elliglöp síðar á ævinni, samkvæmt nýrri bandarískri rannsókn. Niðurstöðurnar benda einnig til þess að styrkleika grips um miðjan aldur megi tengja við líkurnar á heilablóðfalli. Meira »

Gagarín fær verkefni í Kanada

Mynd tekin árið 2011.
17.2. Margmiðlunarfyrirtækið Gagarín hefur verið ráðið til að hanna og þróa þrenns konar gagnvirka hugbúnaðarlausn fyrir Mannréttindasafn Kanada í Winnipeg. Mannréttindasafnið í Kanada verður mjög tæknilegt og geta gestir safnsins fengið upplýsingar um nánast allt sem viðkemur mannréttindum í heiminum. Meira »

Áhrif bólusetninga rannsökuð

Miðeyrnabólga er algengasta tilefni sýklalyfjanotkunar barna.
14.2. Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar. Meira »

Bann dregur úr reykingum

13.2. Tóbaksvarnarlög í nokkrum ríkjum Evrópu hafa ýtt undir það að fólk banni reykingar á heimilum sínum og um leið dregið úr reykingum hjá reykingafólki, samkvæmt nýrri rannsókn sem birt er í tímaritinu Tobacco Control. Meira »

Dönsk börn bryðja vítamín eins og nammi

Vítamíntöflur
13.2. Á ári hverju þurfa a.m.k. 150 dönsk börn læknisaðstoð vegna þess að þau hafa tekið of margar vítamíntöflur. Töflurnar eru litríkar og bragðgóðar og mörg börn borða þær eins og nammi, að sögn Politiken. Í fyrra dó 15 ára stúlka vegna járneitrunar eftir að hafa borðað of margar járntöflur. Meira »

Árás á vefsvæði CIA

Grímur tengdar samtökunum Anonymous.
10.2. Vefsvæði bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, er óaðgengilegt eftir tölvuárás samtakanna Anonymous fyrr í dag. Meðlimir samtakanna hafa fagnað sigri á samfélagsvefnum Twitter á sama tíma og talsmaður CIA sagði við fréttaveituna AFP að málið væri í rannsókn. Meira »

Mikilvæg atvinnugrein myndskeið

130212 ut radstefna
13.2. Íslenskum fyrirtækjum sem selja hugbúnaðalausnir fjölgar sífellt og hafa mörg náð mjög góðum árangri bæði hérlendis og erlendis. Nýverið var haldin upplýsingatæknimessa á Grand Hóteli í Reykjavík þar sem fyrirtækjum gafst kostur á að kynna starfsemi sína. Meira »

Íranar komast ekki á netið

12.2. Írönsk stjórnvöld hafa undanfarna daga takmarkað aðgang borgara sinna að netinu svo þeir geta til dæmis ekki komist í tölvupóst í gegnum Gmail, Yahoo og Hotmail. Meira »

Norðurljósin utan úr geimnum myndskeið

Norðurljós
10.2. Alþjóðlega geimstöðin náði nýverið mögnuðum myndum af norðurljósum á fleygiferð yfir jörðinni. Norðurljós sjást allt frá Mexíkó til Kanada í janúar. Meira »
Finnur.is
HÚSGÖGN,HEIMILISTÆKI, SKRAUTMUNIR OG FLEIRA TIL SÖLU.
Rococo sófasett, skrifstofuhúsgögn, rúm, ísskápar, þvottavélar, uppþvottavélar, ...
3 SÆTA SMOGEN SÓFI
3 sæta Smogen sófi. Keyptur í maí 2011. Nýr 15...
Papillon til sölu Skemmtilegir fjölskyldu hundar
Erum með yndislega Papilon til sölu . Afhendast heilsufarsskoðaðir örmerktir og ...
Trigano Silver hjólhýsi
Fyrir íslenskar aðstæður. 60 cm lægri í akstri Örugg í meiri vindi Minni loft...
 
Sýslumaðurinn á akureyri - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Sýslumaðurinn í hafnarfirði - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Stúkan glitnir
Félagsstarf
l GLITNIR 6012022219 III ...
Stúkan edda
Félagsstarf
l EDDA 6012022119 III...