Farsímar á jarðskjálftavaktinni

Samsung Note android snjallsími
Samsung Note android snjallsími Reuters

Nýlega setti frumkvöðlafyrirtækið Reon Tech snjallsímaforritið Skelfi á markað en það gerir notandanum kleift að fylgjast með jarðhræringum á Íslandi nánast um leið og þær verða.

Forritið er tengt við jarðskjálftavakt Veðurstofunnar og sýnir yfirlit yfir alla jarðskjálfta nokkra daga aftur í tímann og einnig alla eldri jarðskjálfta yfir 3 stig, hvort heldur sem er í lista með ítarupplýsingum eða myndrænt á korti.


Hægt er að nálgast forritið endurgjaldslaust í Android-markaðinum eða í gegnum vefsíðu fyrirtækisins og mun það einnig koma út fyrir Nokia-snjallsíma á næstu dögum, segir í tilkynningu.

Skelfir er fyrsta forritið sem Reon Tech gefur út en fyrirtækið vinnur nú að þróun á fjölspilunartölvuleik fyrir snjallsíma sem væntanlegur er á næsta ári. Reon Tech er eitt þeirra 33 fyrirtækja sem eru í Kvosinni, frumkvöðlasetri. Frumkvöðlasetrið Kvosin er samstarfsverkefni Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Íslandsbanka.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert