Ný ímynd Svía með bónda á Twitter
Flestir þekkja markaðsátakið Inspired by Iceland sem sett var í gang í kjölfar gossins í Eyjafjallajökli en þar var tæknin nýtt til að hvetja ferðamenn til að hugsa til Íslands. Svíar hugsa ekki ósvipað en nú er í gangi tilraun, „the world's most democratic Twitter account,“ á vegum sænsku ferðamálastofunna og The Swedish Institute. Tilraunin felst í því að vikulega fær einn Svíi full yfirráð yfir opinberum Twitter-reikningi Svíaríkis, @Sweden.
Bóndi með lífrænan búskap, prestur og bosnískur innflytjandi eru meðal þeirra sem hafa fengið full yfirráð yfir reikningnum og deila þar daglegri reynslu sinni og hugleiðingum með netheimum. Vinsældir Twitter-reikningsins hafa tvöfaldast síðan verkefninu var hleypt af stað og fóru úr 8.000 í 17.000 fylgjendur í desember.
Bóndinn, Adam Arnesson, sem er aðeins 21 árs er stærsta stjarna verkefnisins hingað til en hann er líka í námi og er plötusnúður. Hann segist hafa vilja gefa aðra mynd af búskapnum og Twitter veiti honum tækifæri til að tala við fólk sem hann hefði aldrei talað við annars og eignast nýja vini. Sumir hafa jafnvel heimsótt hann.
Lýðræðislegt - óritskoðað
Lýðræðistilraunin ef svo má kalla á ástkæra, ylhýra, felst í því að tístin eru óritskoðuð og ekki alltaf jákvæð í garð Svíþjóðar. Hasan Ramic, bosnískur innflytjandi, var með Twitter-reikninginn í viku og þar gagnrýndi hann meðal annars sænska velferðarkerfið.
Í hverri viku kemur nýr tístari, með ákveðinn bakgrunn eða úr ákveðinni starfsstétt en Malin Nyberg hjá sænsku ferðamálastofunni segist ekki hafa áhyggjur af því að fólk búi sér til nýjar staðalímyndir af Svíum. Hún segir að með því að sýna hversu fjölbreyttu mannlífi landið býr yfir sé vakinn áhugi hjá fólki og það verði forvitið um Svíþjóð. Sérstaklega eigi það við þegar hlutirnir séu ekki eins og fólk bjóst við. Þá vilji það vita meira.

























