Rússneskt geimfar fellur til jarðar í dag
Rússneska geimferðastofnunin Roscosmos sagði á vefsíðu sinni í morgun, að líklegt væri að mannlaust könnunarfar, sem mistókst að senda til mars á síðasta ári, félli til jarðar síðar í dag.
Roscosmos sagði á vefsíðu sinni fyrr í morgun, að Phobos-Grunt-farið myndi líklega lenda í Kyrrahafinu við vesturströnd Síle einhvern tímann á tímabilinu 14:35 til 22:24 í dag. Stofnunin dró þessa spá hins vegar til baka og segir að ómögulegt sé að segja fyrir um það hvar brak úr farinu muni lenda.
ITAR-TASS-fréttastofan hafði eftir heimildarmönnum í geimferðastofnuninni, að líklegt væri að farið kæmi inn í lofthjúp jarðar klukkan 18:40 og hugsanlega myndi brak úr því lenda á afskekktu svæði í Gobi-eyðimörkinni í Kína.
Farinu var skotið á loft 9. nóvember en komst aldrei af sporbraut um jörðu.
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
























