Ný aðferð markar tímamót í baráttunni við malaríu
Þýskir vísindamenn greindu frá því í dag að þeir hefðu uppgötvað aðferð sem geri það að verkum að hægt verður að bjóða upp á mun ódýrari lyf gegn malaríu en áður hefur verið hægt. Með aðgerðinni verður framleiðsla þeirra mun ódýrari og einfaldari.
Talið er að um 200 milljónir manna séu með malaríu í heiminum. Milljónir þeirra, einkum og sér í lagi í fátækustu löndunum, hafa hvorki ráð á að kaupa malaríulyf né lyf sem koma í veg fyrir sjúkdóminn.
Lyfjafræðingar hjá Max Planck-stofnuninni hafa fundið út aðferð til að mynda artemisinin-sameind með því að nota súrefni og ljós. Því þurfi ekki lengur að reiða sig á framleiðslu þess hjá plöntum. Gera lyfjafræðingarnir ráð fyrir að hægt verði að hefja notkun á artemisinin framleiddu með þessari aðferð eftir hálft ár.
Talið er að 655 þúsund manns hafi látist úr malaríu árið 2010. Þar af voru 86% þeirra börn yngri en fimm ára, samkvæmt upplýsingum frá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni.
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
























