Hægt að komast inn á Wikipedia
Þrátt fyrir að alfræðivefurinn Wikipedia liggi nú niðri í mótmælaskyni við umdeild lagafrumvörp er enn hægt að skoða vefinn á far- og snjallsímum. Þá er hægt að skoða síðuna á tölvum með því að slökkva á svokölluðu JavaScript í vefvafra tölvunnar. Þetta kemur fram í skilaboðum stjórnenda Wikipedia til notenda.
Hægt er að nálgast leiðbeiningar um hvernig á að slökkva á forritinu á tækniupplýsingasíðu Wikipedia. Í skilaboðum stjórnendanna segir að ætlun þeirra sé ekki að koma algerlega í veg fyrir að fólk geti lesið Wikipedia og ekkert sé athugavert við það að fara í kringum lokunina. Tilgangurinn með henni hafi verið að fólk sæi skilaboðin um frumvörpin SOPA og PIPA.
SOPA stendur fyrir „Stop Online Piracy Act“ og miðar að því að koma í veg fyrir stuld á ýmsu höfundarréttarvörðu efni á netinu og PIPA stendur fyrir „The Protect IP Act“.
Frumvörpin njóta hylli í kvikmynda- og tónlistariðnaðinum. Einnig eru framleiðendur hugbúnaðar hlynntir þeim og viðskiptaráð Bandaríkjanna. Samtök sem berjast fyrir tjáningarfrelsi eru aftur á móti andsnúin þeim.
Stofnendur Google, Twitter, Wikipedia, Yahoo! og ýmissa annarra netrisa skrifuðu í opnu bréfi sínu í síðasta mánuði að lagasetningin myndi gefa bandarískum yfirvöldum vald til ritskoðunar á sama hátt og yfirvöld hafa í Kína, Malasíu og Íran.
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
























