Ritskoðun netsins möguleiki
Hallur Már - hallurmar@mbl.isAlfræðivefnum Wikipedia hefur nú verið lokað í einn sólarhring. Aðgerðirnar eru til að vekja athygli á löggjöf sem legið hefur fyrir bandaríska þinginu að undanförnu. Löggjafirnar, sem eru í raun tvær SOPA og PIPA, hafa vakið mikla úlfúð í netheimum og talað hefur verið um ritskoðun netsins.
Fleiri vefsvæði hafa fylgt fordæmi Wikipedia til að leggja áherslu á SOPA-frumvarpinu sem er ætlað að koma í veg fyrir ólöglega dreifingu efnis með því að heimila höfundaréttarsamtökum að láta loka aðgengi að vefsvæðum þar sem efni er ólöglega dreift. Google birtist notendum í Bandaríkjunum í dag með stórum svörtum borða sem hylur merki fyrirtækisins til að leggja áherslu á möguleikann á ritskoðun netsins.
Tryggvi Björgvinsson, formaður Félags um stafrænt frelsi á Íslandi, segir þó að eðli netsins hafi alltaf verið að finna leiðir fram hjá boðum og bönnum. Því myndi löggjöfin einungis verða sóun á orku og fé þar sem nýjar leiðir myndu að öllum líkindum spretta upp jafnóðum.
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
























