Aukasekúndan áfram
Alþjóðlega fjarskiptasambandið (ITU), sem gefur út alþjóðlega staðla um fjarskipti og tímamælingar, náði ekki samkomulagi um að fella niður aukasekúndu, sem bætt er við atómklukkur til að tryggja að tímamæling þeirra sé í samræmi við snúning jarðar.
Sá háttur að bæta við einskonar hlaupsekúndum hefur verið hafður í fjóra áratugi til að leiðrétta skekkju á snúningi jarðar sem stafar af áhrifum þyngdarafls sólarinnar og tunglsins.
Á fundi fjarskiptanefndar sambandsins í Genf í dag varð niðurstaðan að fresta ákvörðun um tillögu um að leggja hlaupsekúndurnar af. Gera þurfi frekari rannsóknir.
Sérfræðingar telja að sé hlaupsekúndunum ekki bætt við komi fram 15 sekúndna misræmi í tímatalinu á hverjum 100 árum.
Sekúndunni hefur verið bætt við í 24 skipti frá því ITU skilgreindi samræmdan alheimstíma fyrir 40 árum. En sérfræðingar segja að þessu eigi að hætta. Í hver skipti sem sekúndu er bætt við þarf að stilla tölvur heimsins handvirkt og slíkt er talið bjóða hættunni heim.
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
























