Hefð fyrir því að greina grátgjörn ungbörn með magakveisu
Skýringar á gráti ungbarna er undantekingarlítið leitað í líkamanum og lítið horft til annarra þátta. Að mati Sæunnar Kjartansdóttur sálgreinis þarf að horfa á fleiri tilfinningalega þætti í líðan barna.
„Í okkar menningu er hefð fyrir því að greina börn sem gráta mikið með magakveisu. Rannsóknir hafa þó sýnt að grátur barna veltur mjög á því hversu færir foreldrarnir eru að róa barnið og það byggist á tengslunum þeirra á milli,“ segir Sæunn.
Í umfjöllun um þessi mál í Morgunblaðinu í dag segir, að viðvarandi streita, sem getur t.d stafað af vanlíðan foreldra, sé einn þáttur sem getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir þroska barna og heilsu fram á fullorðinsár. „Ungbörn eru margfalt næmari en fullorðnir, þau eru eins og svampur á líðan foreldra sinna og því er það ekki fyrr en foreldrarnir fá hjálp með sínar tilfinningar sem léttir á börnum þeirra.“
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
























