70% líkur á stórum skjálfta í Tókíó
17. janúar síðastliðinn var haldin minningarathöfn um hinn mikla Hanshin-skjálfta sem reið yfir Kobe í vesturhluta Japan árið 1995. 6.000 manns létust í skjálftanum. Reuter
Japanskir vísindamenn vara við því að 70% líkur séu á að jarðskjálfti af stærðargráðunni 7 stig muni ríða yfir Tókýó á næstu fjórum árum. Byggjast útreikningarnir á vaxandi fjölda skjálfta sem mælst hafa síðan jarðskjálftinn 11. mars síðastliðinn gekk yfir.
Samkvæmt niðurstöðum vísindamanna við jarðskjálftarannsóknarmiðstöð Tókýó-háskóla hafa að meðaltali 1,48 jarðskjálftar mælst daglega nálægt eða í Tókýó síðan í mars, allir á bilinu 3-6 stig.
Þetta er fimmföld aukning frá því fyrir skjálftann í mars.
Fleiri en 100 þúsund manns létust í síðasta stóra skjálftanum sem reið yfir í Tókýó árið 1923 en hann var 7,9 stig.
Borgin stendur á flekamótum þriggja jarðskorpufleka, Evrasíu-flekans, Kyrrahafs-flekans og Filippseyjahafs-flekans.
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
























