Áskrifendum Eve Online fjölgar
Áskrifendum tölvuleiksins Eve Online hefur fjölgað á ný eftir mótmælaaðgerðir á síðasta ári, sem leiddu til þess að fyrirtækið CCP, sem rekur leikinn, missti fjölda áskrifenda.
Vefurinn Develop hefur eftir Hilmari Veigari Péturssyni, forstjóra CCP, að hann harmi þau mistök, sem gerð voru sl. sumar og leiddu til þess að fjöldi áskrifenda tók þátt í táknrænum mótmælum. Um 1.500 spilarar hættu um tíma að spila og réðust í sameiningu á ýmis táknræn „mannvirki“ í leiknum.
„Þessi mótmæli sýna hve viðskiptavinir geta brugðist hart við viðskiptalegum ákvörðunum og hve miklar kröfur þeir gera til þeirra sem þróa leikinn,“ segir Hilmar við Develop. „Við stóðumst ekki þær kröfur.“
Hann segir að áskrifendum hafi farið fjölgandi á ný en þeir séu þó ekki jafnmargir og þeir voru áður en mótmælaaðgerðirnar hófust.
Frétt Develop
CCP biðst afsökunar á breytingum á tölvuleik
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
























