Sólgos veldur truflunum og norðurljósum
Mynd sem sýnir sólgos. mbl.is
Sólgos hefur valdið stærsta segulstormi sem mælst hefur frá árinu 2005 og sem gæti truflað gervihnattafjarskipti á heimskautasvæðum jarðar, að sögn bandarísku sjávar- og veðurfræðistofnunarinnar, NOAA.
Atburðarásin hófst síðdegis í gær þegar meðalstórt sólgos eða kórónuskvetta varð á miðju sólarinnar. Þótt gosið væri ekki stórt olli það miklum segulstormi og þeyttust hlaðnar agnir út í geiminn með 6,4 milljóna kílómetra hraða á klukkustund. Agnirnar hafa þegar borist til jarðar og munu halda áfram að dynja á jörðinni allan daginn á morgun.
Um er að ræða mesta rafsegulstorm sem orðið hefur frá árinu 2005. Hann er þó aðeins talinn vera af stærð 3 á skalanum 1-5.
Búist er við að rafsegulstormurinn valdi norðurljósadýrð í Asíu og Evrópu en ekki er þó búist við umtalsverðum áhrifum
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
























