10 þúsund heimsækja fréttavef Páfagarðs
Í kringum 8-10 þúsund manns heimsækja fréttavefsíðu Páfagarðs daglega og allt að 16 þúsund á dag yfir jólahátíðina. Vefsíðunni var hleypt af stokkunum í júní síðastliðnum og þar birtast allar fréttir og tilkynningar er varða kaþólsku kirkjuna.
Um fjórðungur lesenda síðunnar, eða um 27%, búa í Bandaríkjunum en næst flestir eru notendur í Ítalíu, Þýskalandi og á Spáni. Flestir heimsækja síðuna í gegnum samskiptamiðla, eða 65% í gegnum Facebook og 30% í gegnum Twitter.
Erkibiskupinn Claudio Maria Celli, yfirmaður samskiptamála hjá Páfagarði, sagði á blaðamannafundi í dag að meðaltíminn sem hver einstaklingur eyddi á síðunni væri um 2 mínútur, sem sýndi að fólk væri ekki bara að heimsækja vefsíðuna fyrir slysni heldur læsi það efni sem þar væri að finna.
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
























