Tækni & vísindi
| AFP
| 24.1.2012
| 11:13
| Uppfært
14:25
Enn kvartað yfir Google
Franska netverslunin Twenga hefur sent inn kvörtun til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins vegna Google en Twenga sakar Google um að misnota stöðu sína á netmarkaði til að koma í veg fyrir samkeppni.
Samkeppnissvið framkvæmdastjórnarinnar hefur unnið að rannsókn á starfsemi Google frá því í nóvember 2010. Fjölmargar kvartanir hafa borist frá evrópskum fyrirtækjum vegna samkeppnisstöðu Google.
Twenga, sem býður notendum upp á að leita og bera saman verð á fjölmörgum vörum, tilkynnti í dag um að fyrirtækið hefði lagt fram formlega kvörtun í gær.
Telja forsvarsmenn Twenga að Google reyni að koma í veg fyrir alla samkeppni á þessum markaði, svo sem þegar kemur að verðsamanburði á flugferðum, hótelgistingu og fleiri sviðum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
HARÐVIÐUR TIL HÚSBYGGINGA
Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á...
Palomino fellihýsi með loftpúðafjöðrun
Til sölu Palomino 4102 árg. 2008 fellihýsi með vandaðri loftpúðafjöðrun , loftdæ...
TRAVEL LITE HÚSIN
Travel Lite Húsin eru í mörgum stærðum og henta á...
SPÁNN - Gullna ströndin Costa Brava
Costa Brava - Pladja de Aro er frábær sólarstranda staður. Við leigum út íbúð st...
























