Hægt að lyfta Feneyjum með vatni
Feneyjar eru smátt og smátt að sökkva í sæ, en nú hafa verið settar fram hugmyndir um að lyfta landinu með því að dæla sjó niður göng við borgina.
Frá þessu er sagt í National Geographic. Í tímaritinu segir að raunhæft sé að lyfta Feneyjum um 30 cm.
Land undir Feneyjum lækkaði um 12 cm á árunum 1950-70. Ástæðan er m.a. sú að á þessum árum var grunnvatni dælt úr jörðinni. Nýjustu rannsóknir benda til þess að landið lækki núna sem nemur um 5 cm á öld. En þó að landsig sé að minnka sýna mælingar að yfirborð sjávar i Adríahafi sé að hækka.
Hugmyndir hafa nú verið settar fram um að dæla sjó í göng og brunna sem umkringja borgina í þeim tilgangi að lyfta landinu. Það þarf talsvert mikinn sjó til að þetta skili árangri eða um 150 milljarða lítra. Og árangurinn kemur ekki strax í ljós. Talið er að það taki 10 ár að lyfta landinu.
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
























