Legókall nær nýjum hæðum
Tveir 17 ára kanadískir drengir sendu á dögunum legókall út í geim með heimasaumaðri fallhlíf og sérgerðum búnaði.
Þeir Mathew Ho og Asad Muhammad eyddu fjórum laugardögum í að útbúa búnað sem samsettur var úr aukahlutum sem drengirnir höfðu pantað af netinu og sett saman sjálfir. Þar á meðal var heimasaumuð fallhlíf og helíumblaðra. Með kanadíska fánann að vopni var leikfangið svo sent af stað, fast við blöðruna og fjórar myndavélar. Mest náði legókallinn 24 kílómetra hæð, eða þrisvar sinnum þeirri hæð sem venjulegar farþegaflugvélar ná.
Myndavélarnar sem festar voru við leikfangið náðu myndskeiði og 1.500 ljósmyndum af afrekinu. Þar má sjá hinn agnarsmáa legó-fara ferðast upp fyrir veðrahvolf jarðar í myrkur með útlínur landa jarðar langt fyrir neðan.
Fram kemur á vef The Guardian að verkefnið hafi kostað drengina ævintýragjörnu um 400 kanadíska dollara, eða 50 þúsund íslenskar krónur. Þeir sögðu hvatann á bak við verkefnið einskæra forvitni.
Samkvæmt Dr. Michael Reid, prófessor í geimvísindum við Toronto háskóla sýndu drengirnir einstaka hugvitssemi við gerð búnaðarins. Hann segir doktorsnema hafa staðið að svipuðum verkefnum. Þess vegna sé þetta afrek tveggja unglinga einstaklega aðdáunarvert.
Lego sendi drengjunum hamingjuóskir. „Okkur kemur sífellt á óvart hvað aðdáendur Lego finna skapandi og skemmtilegar aðferðir til að nýta vörur fyrirtækisins. Aldrei hefðum við séð fyrir að legókall yrði sendur út í geim með helíumblöðru.“ segir talsmaður Legó.
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
























