Fjarlægðu fóstur úr þriggja ára gömlum dreng
Skurðlæknar í Perú hafa fjarlægt fóstur úr þriggja ára gömlum dreng. Læknarnir segja að þetta hafi verið tvíbura drengsins og segja að hann hafi lifað sem sníkill inni í honum. Þetta er sjaldgæfur kvilli og er talað um ósamhverfa samtengda tvíbura.
Drengurinn, Isbac Pacunda, hafði kvartað undan kviðverkjum. Rannsókn leiddi í ljós að 25 cm langt fóstur var inni í Pacunda.
„Við ómskoðun kom í ljós að inni í honum voru bein – upphandleggsbein, lærleggur og hryggur. Sjúkdómsgreiningin var svo staðfest í annarri ómskoðun,“ segir læknirinn Marco Antonio Flores.
Fóstrið er ekki með heila, hjarta eða lungu. En það lifði á blóði drengsins að sögn lækna. Líkurnar á því að þetta geti gerst við fæðingu eru einn á móti 500.000.
Aðgerðin við að fjarlægja fóstrið er flókin en mun koma litla drengnum til góðs.
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
























