Gervitungl á tæpasta vaði
Þýski rannsóknargervihnötturinn Rosat hrapaði í Bengalflóa í október sl., rúmlega 20 árum eftir að honum var skotið á loft. Útreikningar sýna hins vegar að ef hann hefði hrapað sjö mínútum seinna þá hefði hann hæft Peking, höfuðborg Kína.
Greint er frá þessu á vefútgáfu þýska ritsins Der Spiegel.
Þann 1. júní var Rosat skotið á loft frá Kanaveralhöfða á Flórída. Gervihnötturinn var útbúinn nýjustu tækni og gerði hann vísindamönnum kleift að rannsaka rafsegulgeislun í geimnum í fyrsta sinn.
Rosat átti upphaflega aðeins að vera í notkun í eitt og hálft ár en hann safnaði hins vegar gögnum í níu ár. Frá árinu 1999 var hann ekki lengur í notkun.
Samkvæmt útreikningum evrópsku geimferðastofnunarinnar þá hefði getað orðið stórslys aðfararnótt 23. október sl. þegar Rosat féll til jarðar. Litlu munaði að hann hæfði Peking, en þar búa yfir 20 milljónir manna. Evrópska geimferðastofnunin segir að brak úr hnettinum, sem ferðaðist á um 450 km hraða, hafi verið hættulega nálægt því að hæfa kínversku höfuðborgina. Allir önduðu léttar þegar Rosat skall í Bengalflóa.
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
























