Facebook á Wall Street
Samskiptavefurinn Facebook hyggur á skráningu á Wall Street. Markmiðið er að auka hlutafé Facebook um tíu milljarða Bandaríkjadollara. Verði af hlutafjárútboðinu verður það hið stærsta sem um getur þegar tæknifyrirtæki á í hlut, en fyrra metið á Google.
Google fór á hlutabréfamarkað árið 2004 og seldust þá hlutabréf í fyrirtækinu fyrir 1,9 milljarða dollara.
Notendur Facebook eru nú taldir vera um 800 milljónir. Vefurinn er mest notaði samskiptavefur í öllum löndum heims nema sjö. Í Rússlandi eru þarlendir samskiptavefir vinsælastir og Facebook er bannað í Kína.
Hagnaður Facebook í fyrra var 4,27 milljarðar Bandaríkjadollara. Meirihluti teknanna kemur frá auglýsingum. Stofnandi Facebook, Mark Zuckerberg, er talinn eiga 24%.
Líklegt er að sala hefjist á hlutabréfum í Facebook í maí.
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
























