Setlög á Drekasvæðinu 260 milljón ára gömul
Útboð á sérleyfum til olíurannsókna og -vinnslu á Drekasvæðinu stendur nú sem hæst. Síðasta sumar fóru fram rannsóknir á svæðinu á vegum norsku olíumálastofnunarinnar og Háskólans í Bergen og voru niðurstöðurnar kynntar fyrir skemmstu á vetrarmóti norrænna jarðfræðinga.
Rannsóknirnar byggjast m.a. á sýnum sem tekin voru úr bröttum hlíðum á Jan Mayen-hryggnum. Sýnunum var safnað með fjarstýrðum kafbáti bæði innan lögsögu Noregs og Íslands. Greiningar á sýnunum benda til þess að gömul setlög sé að finna á svæðinu en elsta sýnið er 260 milljón ára gamalt.
Sýnin sem nú hafa verið rannsökuð staðfesta tilvist móður- og geymslubergs. Þessar niðurstöður eru jákvæðari heldur en Olíustofnunin þorði að vona. Ýmsir aðrir óvissuþættir eru fyrir hendi um það hvort olía eða gas hafi myndast og varðveist á svæðinu eins og til að mynda hitastigull í jarðlögum og tilvist þakbergs, segir í tilkynningu frá iðnaðarráðuneytinu.
Lykilforsenda fyrir myndun olíu eða gass er að móðurberg sé að finna á svæðinu, en olía eða gas myndast úr því við réttar aðstæður í jarðlögunum. Jafnframt þarf að vera til staðar geymsluberg þar sem olían eða gasið safnast saman.
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
























