Heilablóðfall hefur áhrif á börnin
Rannsóknin miðaði að því að rannsaka börn sem áttu foreldra sem höfðu fengið heilablóðfall. mbl.is/Kristinn Ingvarsson
Börn sem eiga foreldra sem fengið hafa heilablóðfall fyrir 65 ára aldur eru í meiri áhættu fyrir því að fá einkenni sem benda til þau geti líka fengið heilablóðfall. Þetta sýnir könnun sem kynnt var á læknaþingi í New Orleans í dag.
Rannsóknin náði til um 1.300 einstaklinga, en meðalaldur þeirra var um 61 ár. Þátttakendur fóru í heilaskönnun þar sem sérstaklega var skoðað hvort einhver merki væru komin fram um skemmdir á heilavef. Þátttakendur gengust einnig undir próf til að meta ýmsa andlega hæfileika, m.a. minni, rökhugsun, getu til að læra og fleira.
Um 10% þátttakenda áttu foreldra, annað eða bæði, sem höfðu fengið heilablóðfall fyrir 65 ára aldur. Rannsóknin leiddi í ljós að í þessum hópi var meira um heilaskemmdir en í hópi þeirra sem ekki áttu foreldra sem höfðu fengið heilablóðfall. Börnum þeirra sem áttu foreldra sem höfðu fengið heilablóðfall gekk líka verr í minnisprófum. Skipulagsgáfa þeirra var einnig verri en hinna.
Hins vegar hafði það ekki áhrif á getu til að muna, rökhugsun eða getu til að læra að eiga forseldra sem höfðu fengið heilablóðfall.
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
























