Íslenskt „app“ slær í gegn
Forritið Air Media Center frá íslenska fyrirtækinu App Dynamic ehf streymir efni milli tölvu og iPhone eða iPad.
Una Sighvatsdóttir Nýtt íslenskt snjallsímaforrit, „app“, sem hannað er fyrir iPhone og iPad hefur slegið í gegn meðal notenda um allan heim. Eftir aðeins nokkurra daga sölu hefur forritið, Air Media Center, farið í efstu sæti sölulista í yfir 40 löndum og heldur áfram að klífa listana víða um heim.
„Það eru alltaf tískusveiflur á markaðnum, fólk er að leita að ákveðnum hlutum á ákveðnum tímum. Ef þú sérð út leið til að fylla upp í tómarúmið hverju sinni, þá ertu kominn með lykilinn að velgengni,“ segir Pratik Kumar, framkvæmdastjóri App Dynamic ehf., sem hannaði forritið. Fyrirtækið, sem hefur aðsetur í Kópavogi, var stofnað fyrir um tveimur árum og hefur vaxið ört síðan.
Streymir efni úr tölvu í iPad og iPhone
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem App Dynamic ehf. nær góðum árangri í sölu, því ýmis forrit sem það hefur hannað (s.s. Remote HD, Air Frame og Airserver) hafa selst vel. Pratik segir þó nýja forritið, Air Media Center, það langflóknasta sem hann hefur hannað, en það höfði jafnframt til mun stærri markhóps. Í stuttu máli er Air Media Center hugsað sem lausn fyrir notendur sem streymir efni milli tækja og opnar þannig aðgang að kvikmyndum, ljósmyndum, tónlist og persónulegum myndböndum á Mac- og PC-vélum notenda, í gegnum iPhone og iPad.
„Ef þú átt iPad og þig langar til að horfa á mynd sem þú átt á DVD, þá getur þú ekki spilað hana í iPad-inum. En ef þú ert með tölvu í húsinu, þá seturðu bara DVD-diskinn þar og forritið sér um rest. Bak við tjöldin samkeyrir það alla miðla sem þú ert með svo þú þarft ekki að afrita á milli og bíða, það gerist bara sjálfkrafa. Þú sérð tölvuna þína í gegnum iPadinn, og getur horft á myndina þar.“
Myndasýning fyrir ömmu
Önnur sambærileg forrit hafa verið á markaðnum um tíma en Air Media Center hefur þegar selst betur en mikið auglýstar vörur samkeppnisaðila, þ.á m. AirVideo og StreamToMe. „Þessi öpp hafa verið til, en það eru vandamál með þau og þau hafa ekki staðið undir væntingum, svo ég ákvað að endurbæta þessa hugmynd.“ Þannig yfirfærir Air Media Center líka ljósmyndir og tónlist. „Svo ef þú ert til dæmis með myndir frá jólunum og amma þín kemur í heimsókn og vill skoða þær, þá þarftu ekki að afrita þær úr tölvunni á iPadinn heldur eru þær þar sjálfkrafa.“
Pratik er indverskur að uppruna en hefur verið búsettur á Íslandi í rúman áratug og stofnaði fyrirtækið hér árið 2010. Aðspurður hvort ekki sé erfitt að hanna vörur fyrir alþjóðlegan markað frá Íslandi segir hann stundum hindranir í veginum. „Að sumu leyti er það það og við höfum þurft að stofna fyrirtæki í Bandaríkjunum líka vegna þess að sumar tegundir af hugbúnaði þurfa að vera sérhannaðar fyrir það svæði.“
Mörg hundruð þúsund kaupendur á einum sólarhring
Hönnun forritanna er að sögn Pratiks bara fyrsta skrefið í ferlinu. Þá taki við að koma þeim í umferð og þar vegi athygli frá miðlum sem fjalla um tækni þungt. „Ef ég hanna vöru og Macworld gefur henni „Vá“-stimpil þá munu nokkur hundruð þúsund manns kaupa hana daginn eftir, bara vegna þess að Macworld sagði „vá“. Hann segir samkeppnina mikla, í Apple App-búðinni eru yfir 300.000 forrit til sölu, en tækifærin jafnframt mörg. „Öll forrit sem við höfum hannað undanfarin 2 ár hafa farið á efstu lista í Apple-búðinni.“
App Dynamics ehf. hefur gert samstarfssamning við Samsung varðandi þróun á forritum. Þá verður Air Media Center-forritið brátt gefið út fyrir Android-stýrikerfi og Samsung Smart Tv.


























