Breyttir lífshættir skipta sköpum
Hægt er að koma í veg fyrir 30% krabbameinstilfella með breyttum lífsháttum. Einn helsti áhættuþátturinn er reykingar, samkvæmt nýjum upplýsingum frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO).
Auk tóbaks er áfengi stór áhættuþáttur þegar kemur að krabbameini og of lítil neysla ávaxta og grænmetis.
Alls má rekja 22% allra dauðsfalla af völdum krabbameins í heiminum til tóbaksnotkunar og 71% dauðsfalla vegna lungnakrabba.
Árið 2008 létust 7,6 milljónir manna í heiminum úr krabbameini. Flestir þeirra voru með krabbamein í lungum, lifur, maga, ristli og brjóstum. Um 70% dauðsfallanna voru í ríkjum þar sem tekjur eru í lægri kantinum.
Samkvæmt spá WHO mun dauðsföllum af völdum krabbameins fjölga og 13,1 milljón manna mun deyja úr krabbameini árið 2030.
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
























