10 þúsund tíst á sekúndu
Óhætt er að segja að samskiptaþráðurinn Twitter hafi logað á meðan leikið var til úrslita í Ofurskálinni í Bandaríkjunum á sunnudagskvöldið. Á síðustu 180 sekúndum leiksins voru send að meðaltali 10 þúsund tíst á hverri sekúndu.
Um 100 milljón manns fylgdust með lokaviðureigninni í Ofurskálinni (Superbowl) í sjónvarpi á sunnudagskvöldið. Þar áttust við New York Giants og New England Patriots. Risarnir unnu skálina í fjórða sinn.
Hér er þó ekki um heimsmet í tísti að ræða því svo ótrúlega vill til að metið tengist frumsýningu japönsku kvikmyndarinnar Castles in the Sky í desember síðastliðnum. Meðan á sýningu myndarinnar stóð voru skrifuð yfir 25 þúsund tíst á sekúndu.
En sé aðeins litið til íþróttaviðburða slær Ofurskálin út fyrra met sem var sett á úrslitaleiknum á heimsmeistaramóti kvenna í fótbolta í fyrra. Þá voru sjö þúsund tíst skrifuð að meðaltali á hverri sekúndu.
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
























