Drinkorexía er áhyggjuefni
Sú tilhneiging ungmenna að svelta sig til þess að geta neytt áfengis án þess að hafa áhyggjur af því að fitna er kölluð „drinkorexía“ og er vaxandi áhyggjuefni víða um heim.
Í Bandaríkjunum og Englandi er talað um að þessi hegðun fari vaxandi meðal ungra kvenna, þær svelti sig allan daginn til þess að geta hellt í sig áfengum drykkjum að kvöldlagi. Samkvæmt sænska dagblaðinu Dagens nyheter hafa Svíar vaxandi áhyggjur af þessu.
Á vefsíðu blaðsins segist Hanna Kihlander, sem starfar hjá átröskunarstofnun Svíþjóðar, verða vel vör við þetta. „Ungt fólk talar mikið um kaloríur og áfengi, en þeim finnst það ekkert tiltökumál. Þau hugsa gjarnan að allir geri það,“ segir Kihlander. Hún segir að áfengisneysla í stað matar geti verið afar hættuleg.
„Það getur til dæmis haft áhrif á hjartað. Brennslan getur orðið mjög hæg þegar fólk sveltir sig og það getur leitt til þess að fólk verði afar drukkið.“
Anders Tengström, sem vinnur við heilbrigðisrannsóknir á Karólínska sjúkrahúsinu, segir að ungt fólk sé undir miklum þrýstingi um að vera hamingjusamt og fallegt. „Sú mynd, sem margir hafa af hamingjusamri manneskju, er að hún hafi stjórn á eigin líkama og lífi. Auðvitað vita krakkarnir að alkóhól inniheldur kaloríur og þess vegna finnst þeim þau hafa stjórn með því að svelta sig,“ segir Tengström.
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
























