Helmingur 8-12 ára á Facebook
Næstum helmingur 8-12 ára barna notar Facebook þótt þau séu of ung til að mega vera á samskiptavefnum. Í dag er alþjóðlegi netöryggisdagurinn.
Samkvæmt skilmálum Facebook þurfa þeir sem skrá sig á síðuna að vera 13 ára gamlir. Engu að síður sýnir ný rannsókn að um 44% 8-12 ára breskra barna eru skráð á síðuna.
Rannsóknin náði til 2.000 breskra og bandarískra barna á aldrinum 6-14 ára. Í ljós kom að fleiri bresk börn nota Facebook en jafnaldrar þeirra í Bandaríkjunum. Um 23% átta ára barna nota Facbook reglulega. 10% þeirra kynnast síðunni í gegnum foreldra sína.
58% 12 ára barna í Bretlandi eru með síðu á Facebook.
Könnunin leiddi einnig í ljós að 66% sex ára barna vita hvað Facebook er og helmingur þeirra sem tóku þátt í rannsókninni segist gjarnan vilja hafa sérstaka facebooksíðu fyrir yngri notendur.
36% 6-14 ára breskra barna spiluðu tölvuleiki í gegnum Facebook í síðasta mánuði.
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
























