300 milljónir spjaldtölva seljast árið 2015
Um 300 milljónir spjaldtölva seljast árið 2015. Á sama tíma er gert ráð fyrir að um 1,1 milljarður snjallsíma seljist. Þetta segir Guðmundur Arnar Þórðarson, sérfræðingur hjá Nýherja, en hann hélt erindi um sýndarvæðingu á UT-messunni sem fram fer í dag og í kvöld.
Guðmundur segir slíkar spár í takt við breytt landslag innan fyrirtækja. Notendur vilja velja sjálfir þau tæki sem þeir nota til þess að vinna og miðla upplýsingum og gögnum.
Guðmundur segir að nú sé að ryðja sér til rúms það sem kallað hefur verið „Bring your own device" (BYOD), þar sem starfsfólk fær styrk hjá vinnuveitanda til kaupa á tölvum, í stað þess að fá afhenta tölvu frá fyrirtækinu.
„Sýndarvæðing útstöðva er lykilþáttur í slíku fyrirkomulagi en þannig geta notendur valið hvaða endabúnað þeir nota við vinnu sína, hvort sem það er fartölva, spjaldtölva eða farsími, óháð stað og stund. Starfsfólk getur ráðið því hvernig tæki þeir nota til að kalla vinnuumhverfið sitt fram.“
Með sýndarlausn er hægt að ganga enn lengra og tengjast vinnuumhverfinu á öruggan hátt með bæði farsíma og spjaldtölvu óháð því hvar í heiminum viðkomandi er staddur. „Fólk vill sveigjanleika og í auknum mæli er búnaðurinn hluti af lífsstíl viðkomandi. Um leið vill fólk hafa einfaldleikann í fyrirrúmi og nálgast gögnin óháð stað og stund.“
Getur falið í sér verulegt hagræði
Hann segir að gert sé ráð fyrir að um 20 milljón tölva starfsfólks í fyrirtækjum um heim allan verði sýndarvæddar fyrir tölvuský árið 2014. „Mörg fyrirtæki eru farin að huga að slíkri lausn enda getur hún falið í sér verulegt hagræði, t.d. með einfaldari rekstri og umtalsverðum sparnaði í orkunotkun, samkvæmt greiningafyrirtækjum.“
Sýndarvæðing útstöðva felur í sér að allur hugbúnaður og stýrikerfi er ekki vistaður á útstöðvum notenda heldur hýstur á einum miðlægum stað. Það eru því í raun engin forrit eða gögn vistuð á búnaði notenda heldur eru þau sótt yfir tölvuský, segir í frétt Nýherja.

























