Lyf snýr við þróun Alzheimer
Eftirtektarverður árangur hefur náðst við að snúa við þróun Alzheimer-sjúkdóms í músum með því að beita þekktu krabbameinslyfi. Í tímaritinu US journal Science segir að vonast sé til þess að um tímamót sé að ræða í baráttunni við sjúkdóminn.
Í tímaritinu sagði að mýs hefðu fengið lyfið - þekkt sem bexarotene - og mjög fljótt orðið greindari og innan nokkurra klukkustunda hefðu ummerki um sjúkdóminn byrjað að hverfa.
„Við erum furðu lostin og bergnumin,“ sagði forsprakki rannsóknarinnar, Gary Landreth, prófessor í taugavísindum hjá Case Western Reserve háskólanum í Ohio, sem sérhæfir sig í læknavísindum.
„Svona hlutir hafa aldrei nokkurn tímann sést áður,“ bætti hann við í samtali við fréttastofu AFP.
Lyfið hefur þá virkni að auka við framleiðslu svonefnds Apolipo E-próteins sem hjálpar til við að draga úr einkennum sjúkdómsins. Mýsnar hófu að standa sig betur á margvíslegum prófum skömmu eftir að hafa fengið lyfið og sýndu jafnframt aukna félagslega viðleitni og fundu lykt að nýju. Alzheimer-sjúklingar missa gjarnan lyktarskynið.
Ólíkt heilbrigðum músum búa Alzheimer-mýs sér jafnan ekki hreiður og svo virðist sem þær gleymi hvernig eigi að búa sér hreiður. 72 klukkustundum eftir að hafa fengið lyfið hófu hins vegar veikar mýs að búa sér hreiður að nýju.
„Þetta eru ekki frábær hreiður, en hreiður engu að síður,“ sagði Landreth og sagði að virkaði lyfið einnig í mönnum væri mögulega best að nota það á fyrri stigum sjúkdómsins.
Rannsakendur sögðu að rannsóknir á mönnum væru í undirbúningi og niðurstöður væru væntanlegar á næsta ári.
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
























