Bann dregur úr reykingum
Tóbaksvarnarlög í nokkrum ríkjum Evrópu hafa ýtt undir það að fólk banni reykingar á heimilum sínum og um leið dregið úr reykingum hjá reykingafólki, samkvæmt nýrri rannsókn sem birt er í tímaritinu Tobacco Control.
Læknar sem unnu rannsóknina fylgdust með reykingavenjum Hollendinga, Frakka, Þjóðverja og Íra bæði fyrir og eftir lagasetninguna. Í þessum löndum er meðal annars bannað að reykja á vinnustöðum, veitingastöðum og skemmtistöðum og hefur slíkt bann verið í gildi í þó nokkurn tíma. Til samanburðar var fylgst með Bretum en á þessum tíma voru ekki í gildi lög sem bönnuðu reykingar á þessum stöðum.
Eftir að lögin tóku gildi fjölgaði þeim reykingamönnum sem bönnuðu reykingar á heimilum sínum um 17% í Frakklandi, 25% í Írlandi, 28% í Hollandi og 38% í Þýskalandi.
Eins drógu reykingamenn í þessum löndum verulega úr reykingum fyrir utan Frakka sem ekki drógu úr reykingum. Segja þeir sem stóðu að rannsókninni að í mörgum tilvikum séu það þeir sem vilji hætta að reykja sem hafi bannað reykingar á heimilum sínum. Þeir segja að niðurstaða rannsóknarinnar sýni það og sanni að það að banna reykingar á opinberum stöðum auki ekki reykingar á heimilum líkt og margir óttuðust.
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
























