Dönsk börn bryðja vítamín eins og nammi
Á ári hverju þurfa a.m.k. 150 dönsk börn læknisaðstoð vegna þess að þau hafa tekið of margar vítamíntöflur. Töflurnar eru litríkar og bragðgóðar og mörg börn borða þær eins og nammi, að sögn Politiken.
„Við fáum mjög mörg símtöl frá foreldrum sem spyrja ráða vegna þess að barnið þeirra hafi borðað of margar vítamíntöflur. Sem betur fer getum við í flestum tilfellum sagt þeim að slaka bara á,“ segir yfirlæknir við eitrunardeild Bispebjerg-háskólasjúkrahússins, Kim Dalhoff, í samtali við Politiken.
Mánaðarlega þarf að sinna fjölda barna á sjúkrahúsunum, mæla járn í blóðinu og stundum dæla upp úr þeim vítamíntöflum. Það er sérstaklega járninnihald í vítamínunum sem getur verið hættulegt fyrir börn, að sögn Politiken. Of mikil járnneysla getur leitt til magaverkja, blóðugra uppkasta og í einstaka tilfellum lifrar- og nýrnaskaða.
Dalhoff segir að sem betur fer séu alvarleg eitrunartilfelli sjaldgæf. Á síðasta ári dó hins vegar 15 ára dönsk stúlka vegna járneitrunar eftir að hafa borðað járntöflur. Dalhoff segir það ekki alvarlegt þótt börn borði fimm vítamíntöflur eða svo, en þegar þær eru orðnar 20 eða 30 geti það haft afleiðingar.
Mælt er með því við foreldra að litríkar vítamíntöflur séu ekki geymdar þar sem börn nái til. Of algengt sé að þær séu á glámbekk í eldhúsinu þar sem börn freistist til að borða þær eins og sælgæti, að sögn læknis á H.C. Andersen-barnaspítalanum.
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
























