Eyrnamergur bannaður en undarlegt hor í lagi
Bannað er að birta myndir af þvagi, saur, ælu, sæði og eyrnamerg á Facebook. Leyfilegt er að sýna djúp sár og höfuðkúpubrot svo lengi sem innyfli sjást ekki. Viðmiðunarreglur sem Facebook styðst við um hvað má og hvað ekki setja á síðuna, hafa verið birtar á slúðurvefnum Gawker.com og fjallað er um þær í frétt Telegraph.
Úrillur maður, sem segist hafa verið í vinnu hjá Facebook fyrir lúsarlaun við að fara yfir efni á samskiptasíðunni, lét slúðurvefinn fá gögnin. Hann er ekki starfsmaður Facebook heldur þriðja aðila, fyrirtækisins oDesk, sem hefur það verkefni að fara yfir það efni sem sett er inn á Facebook og taka út það sem þykir óæskilegt. Notendur Facebook geta sem kunnugt er tilkynnt efni sem þeir telja óæskilegt.
Ummælum sem bera vott um kynþáttafordóma skal eyða strax samkvæmt reglunum. Séu þessi ummæli hins vegar sett fram í kaldhæðni og í raun til að gera grín að þeim sem eru með kynþáttafordóma eru þau leyfð.
Þá má ekki birta myndir af líkamsvessum en þó er tekið fram að „undarlegt hor“ sé í lagi sem og teiknimyndir af saur, þvagi og hráka.
Í reglunum segir að fjarlægja skuli allar myndir sem séu augljóslega af kynferðislegum toga, jafnvel þótt ekki sé um algjöra nekt að ræða. Á meðan er í lagi að birta myndir af djúpum sárum, miklu blóði og höfuðkúpubrotum og öðrum beinbrotum.
Viðbrögð Facebook við upplýsingalekanum hafa m.a. verið þau að fullvissa notendur sína um að efni þeirra sé ekki deilt til þriðja aðila.
„Við fáum milljónir af kvörtunum á hverjum degi og höfum því fengið aðstoð frá þriðja aðila við að fara yfir lítinn hluta þeirra,“ segir talsmaður Facebook. Hann tekur fram að mikils öryggis sé gætt við meðhöndlun gagnanna. Fyrirtæki sem vinni með Facebook undirgangist reglulega ítarlega öryggisskoðun.

























