Ný gerð reikistjörnu fundin
Með Hubbles-sjónauka NASA og ESA hafa stjörnufræðingar fundið nýja gerð reikistjörnu, vatnaveröld umlukta þykkum gufukenndum lofthjúpi. Hún er minni en Úranus en stærri en jörðin. Þetta kemur fram í ítarlegri umfjöllun á Stjörnufræðivefnum.
„GJ 1214b líkist engri reikistjörnu sem við þekkjum. Stór hluti massa hennar er vatn,“ segir Zachory Berta, stjörnufræðingur við Harvard-Smithsonian Center for Astrophysics (CfA), sem fór fyrir alþjóðlegum hópi stjörnufræðinga sem vann að rannsókninni.
GJ 1214b fannst árið 2009 í MEarth-verkefninu sem David Charbonneau, kollegi Berta við CfA, leiðir.
Þessi risajörð er um 2,7 sinnum stærri en jörðin okkar að þvermáli og vegur um sjöfalt meira. Hún gengur umhverfis móðurstjörnu sína, sem er rauður dvergur, í aðeins 2 milljóna km fjarlægð á 38 klukkustundum. Hitastigið við yfirborð reikistjörnunnar er því um +230°C.
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
























