Stofnfrumur virkuðu á Parkinsons
Stofnfrumur.
Apar, sem þjást af Parkinsonssjúkdóminum, hafa sýnt batamerki eftir að japanskir vísindamenn komu stofnfrumum manna fyrir í heila þeirra. Aparnir voru afar illa haldnir, útlimir þeirra hristust og þeir áttu í erfiðleikum með að stjórna líkama sínum.
Um sex mánuðum eftir að vísindamennirnir, sem starfa við háskólann í Kyoto, komu frumunum fyrir í heila apanna höfðu þeir talsvert betri stjórn á líkama sínum og gátu gengið um.
Yfirmaður rannsóknarinnar, Jun Takahashi, sagði að 35% frumnanna hefðu orðið að dópamín taugafrumum. Næstu tilraunir miða að því að auka fjölda þeirra frumna upp í 70%.
Takahashi segist hafa notað stofnfrumur úr fóstrum, en segir líklegt að í framtíðinni verði notast við frumur sem eru ræktaðar úr húð manna. Engar takmarkanir eru á notkun stofnfrumna í vísindalegum tilgangi í Japan.
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
























