Lág fæðingartíðni í Japan

Frá sjúkrahúsi í Tókýó.
Frá sjúkrahúsi í Tókýó. Reuters

Fæðingartíðni í Japan er lág og er nú svo komið að hún var 1,39 börn á hverja konu í fyrra. Er það þó bót frá því sem var árið 2005 er tíðnin var 1,26 börn á hverja konu. Fari tíðnin undir 1,35 munu fleiri deyja en fæðast í landinu. Af þessu hafa stjórnvöld töluverðar áhyggjur.

Japanskar konur eignast börn seint á ævinni og er meðalaldur frumbyrja yfir 30 ár. Ungt fólk frestar því að eignast börn svo það geti einbeitt sér að starfsframanum. Er því hætta á að japanska þjóðin eldist hratt og að fátt ungt fólk þurfi að halda uppi hagkerfinu með starfskröftum sínum í framtíðinni.

Talið er að á næstu 100 árum muni Japönum fækka um tvo þriðju. Yfir 20% þjóðarinnar eru eldri en 65 ára.

Fáir innflytjendur eru í Japan og mæta hugmyndir um að leyfa meiri innflutning fólks mikilli andstöðu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert