Svefnmeðferð og leitarloftför

Verðlaunagripurinn í Gullegginu 2012. stækka

Verðlaunagripurinn í Gullegginu 2012.

Tíu viðskiptahugmyndir keppa til úrslita í Gullegginu, frumkvöðlakeppni Innovit. Í dag var ljóst hvaða tíu hugmyndir það eru, en þær voru valdar af 327 hugmyndum sem sendar voru inn í janúar. Gulleggið þykir fyrst og fremst stökkpallur fyrir framúrskarandi viðskiptahugmyndir og vettvangur þjálfunar og tengslanets fyrir þá sem hyggja á stofnun fyrirtækja.

Þær tíu viðskiptahugmyndir sem standa eftir eru niðurstaða einkunnargjafar rýnihóps sem var skipaður um það bil 90 sérfræðingum með margvíslegan bakgrunn úr atvinnulífinu og háskólaumhverfinu. Teymin að baki hugmyndunum munu kynna þær frammi fyrir yfirdómnefnd keppninnar í úrslitum sem fram fara laugardaginn 9. mars næstkomandi.

Sigurvegari keppninnar hlýtur verðlaunabikarinn Gulleggið 2013 og 1.000.000 krónur í peningum. Þá verða ýmis aukaverðlaun veitt frá bakhjörlum og styrktaraðilum keppninnar en alls nema heildarverðlaun Gulleggsins 3.000.000 króna. 

Hér fyrir neðan má sjá stutta lýsingu á viðskiptahugmyndunum tíu sem keppa til úrslita á laugardaginn (í stafrófsröð):

Betri svefn
Svefnmeðferð í gegnum internetið.

geoSilica
Vöruþróun og markaðssetning á hágæða fæðubótarefni unnið úr jarðhitakísli úr affallsvatni jarðvarmavirkjanna.

Intraz
Sjálfvirk greining á ferli neytenda og kauphegðun þeirra til markvissrar veltuaukandi hagræðingar í smásöluverslun.

Heyr Heyr
Veröld Stirnis gengur út á að kenna börnum að veita hugmyndum sínum athygli á meðan þau skemmta sér í ævintýralegri afþreyingarveröld.

Murk Games
Parallel Pursuit er fyrsti íslenski eSports leikurinn ætlaður fyrir erlendan markað.

SarDrones
Þróun á ómönnuðum leitarloftförum og hugbúnaði til aðstoðar við leit og björgun.

Sigurást
Sérhannaður fatnaður fyrir fyrirbura sem dvelja á nýburagjörgæslum.

Silverberg
Skrásetning og niðurstöður afreka þinna í líkamsrækt, aðgengilegt allsstaðar án fyrirhafnar.

Sport Hero
Í Sport Hero upplifa börn sig sem sínar eigin íþróttahetjur og um leið eignast ógleymanlegar minningar um íþróttaferil sinn.

Verkvaki
Verkvaki er hugbúnaður sem á nýstárlegan hátt nýtir nýjustu tækni við verkumsjón og tímaskráningar.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda
Einkaflugmenn - Gisting í Tjaldbót-2013
Eigum laust lítið sumarhús á suðurl. fyrir smáfjölskyldur. Flogið á daginn, gri...
Til sölu ný. Flutninga / Farangurskerra
Vönduð, sinkhúðuð og álklædd. 2 hurðir m tjökkum opnat upp. Ber 750.kg. Kassi, L...
Toyota Avensis Wagon 1999
Árgerð 1999. Ekinn 142 þ. km. Nýskráður 6 / 1999. Næsta skoðun 2013. Verð 650.00...
Denney Kitfox
Til sölu Denney Kitfox III árg. 1995. Mótor Rotax 912A 80hp. TT 500klst. Flott v...
 
Samauglýsing ríkiskaup

* Nýtt í auglýsingu 15478 ...
13059 - strætó

Útboð Reykja vík ur borg Inn kaupade...
3 mál
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...
Kveðjusamkoma - hjálpræðisherinn
Félagsstarf
Sunnudaginn 16. júní kl. 16:30 v...