Beðið eftir iPhone í níu daga

Beðið eftir nýjum iPhone 5s.
Beðið eftir nýjum iPhone 5s. AFP

Það er meira en vika þar til hægt verður að kaupa nýja tegund iPhone síma en þrátt fyrir það er biðröð byrjuð að myndast fyrir utan Apple-verslunina í Ginza hverfinu í Tókýó.

Tetsuya Tamura, 44 ára kaupsýslumaður, er sá fyrstu sem er mættur fyrir utan verslunina og í samtali við AFP sagðist hann vera ánægður með að hafa mætt fyrstur í röðina. Sat hann á tjaldstól fyrir utan og tísti á iPhone 4 símann sinn. Alls er hann með 1000 fylgjendur á Twitter en hann nýtir sumarfríið sitt í biðina. Nýr iPhone fer í sölu í Japan þann 20. september nk.

Tamura er ekki einn í biðröðinni eftir iPhone 5s í …
Tamura er ekki einn í biðröðinni eftir iPhone 5s í Tókýó en síminnn fer í sölu eftir 9 daga. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert