Hlýnun gæti endað með „hörmungum“

Þornaður árfarvegur á Ítalíu.
Þornaður árfarvegur á Ítalíu. AFP

Vísindanefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar segist hafa meiri vissu fyrir því en nokkru sinni áður að mannkynið hafi orsakað hlýnun jarðar og spáir því að á þessari öld hækki hitastig um 0,3-4,8°C til viðbótar. 

Nefndin spáir því einnig að yfirborð sjávar muni hækka um 16-82 sentimetra fyrir árið 2100. Skýrsla hópsins var kynnt í Stokkhólmi í dag.

Nefndin segir „ákaflega líklegt“, eða um 95% líkur, að hlýnun jarðar á síðustu sextíu árum sé að stórum hluta af mannavöldum. Í síðustu skýrslu sinni taldi hópurinn um 90% líkur á því.

Náttúruverndarsamtök Íslands segja verkefni dagsins að fá ríkisstjórnir heims, þar á meðal íslensk stjórnvöld, til að taka málið föstum tökum. „Ríkisstjórn Íslands ber umsvifalaust að aflýsa öllum áformum um borun eftir olíu norðan við Ísland. Annað væri fullkomið ábyrgðarleysi,“ segir í tilkynningu frá samtökunum.

Skýrslan sem kynnt var í dag er sú fyrsta af þremur sem nefndin mun gefa út á næstunni. Nefndin hefur á 25 ára tímabili gefið út fjórar sambærilegar skýrslur. Hún hefur m.a. fengið Nóbelsverðlaun fyrir rannsóknir sínar.

Í hverri skýrslu hafa varnaðarorð nefndarinnar vegna hlýnunar af mannavöldum stigmagnast. Hefur hún m.a. varað ítrekað við hættu á flóðum, þurrkum, fárviðrum og hækkandi yfirborði sjávar.

Spá nefndarinnar til ársins 2100 er m.a. reiknuð út með tölvuforritum þar sem ótal þættir eru teknir með í reikninginn, s.s. magn gróðurhúsaloftegunda.

Bjartsýnasta spáin gerir ráð fyrir því að hitastig jarðar muni að meðaltali hækka um 1 gráðu til ársins 2100. Sú svartsýnasta gerir ráð fyrir að hitastigið muni hækka um 3,7-4,8 gráður. Vísindamenn telja slíkt geta endað með miklum hörmungum. Það myndi þýða öfgafullar hitabylgjur, miklar rigningar á sumum svæðum en mikla þurrka á öðrum.

Í nefndinni eiga sæti 257 vísindamenn. 

 Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, þakkaði nefndinni fyrir að gefa út reglulegar og  óhlutdrægar skýrslur um þetta mikilvæga mál.

Hann sagði skýrsluna mikilvægt verkfæri fyrir þjóðir heimsins til að vinna að stefnumörkun í loftslagsmálum. Hann hefur mælt með því að í september á næsta ári verði haldin stór loftslagsráðstefna þar sem þjóðir heims reyni að ná samkomulagi um markmið sín í loftslagsmálum og aðgerðir. Sambærileg ráðstefna var haldin í Kaupmannahöfn árið 2009. Sú ráðstefna er ekki talin hafa skilað nægilegum árangri.

Baráttunni við að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda er enn ólokið.
Baráttunni við að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda er enn ólokið. AFP
Náttúruverndarfólk kom saman í Svíþjóð í dag er skýrsla vísindanefndarinnar …
Náttúruverndarfólk kom saman í Svíþjóð í dag er skýrsla vísindanefndarinnar var kynnt. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert