Bárðarbunga í beinni hjá Mílu

Hér gefur að líta ljósmynd sem fjölmiðlamaðurinn Ómar Ragnarsson tók …
Hér gefur að líta ljósmynd sem fjölmiðlamaðurinn Ómar Ragnarsson tók af hluta Bárðarbungu 3. ágúst sl. Photo/Ómar Ragnarsson

Míla hefur sett upp vefmyndavél á Vaðöldu til að fylgjast með þróun mála við Bárðarbungu.

Hægt er að nálgast vefmyndavélina hér.

Eins og Veðurstofa Íslands hefur greint frá, er skjálftavirkni í kringum Bárðarbungu enn mikil. Heldur dró úr henni í kringum miðnættið, en það bætti aftur í upp úr klukkan fjögur og svo dró aftur lítillega úr. Virknin gengur sem sagt áfram í bylgjum.

Stærstu skjálftarnir urðu undir morgun en þeir voru allir undir þrír að stærð. Virknin er að mestu bundin við austurhluta Bárðarbungu og hefur færst lítillega til norðausturs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert