Farþegahjálmur það sem koma skal?

Evrópski flugvélaframleiðandinn Airbus hefur sótt um einkaleyfi á sérstökum farþegahjálmi sem mögulega mun verða staðalbúnaður í flugvélum framtíðarinnar. Með hjálminum mun vera hægt að hlusta á tónlist, horfa á afþreyingarefni og spila tölvuleiki. Telur fyrirtækið að með hjálminum aukist þægindi farþega til muna.

„Á meðan flugi stendur getur farþegum á stundum leiðst, auk þess sem þekkt er að flugferðir valda hjá sumum kvíða og hræðslu. Til þess að létta farþegum lífið er ýmislegt í boði um borð í flugvélum, til dæmis tónlist, kvikmyndir að tölvuleikur. Auk þess er boðið upp á hressingu. Hins vegar geta þessar lausnir reynst ófullnægjandi. Með þessari uppfinningu er miðað að því að bæta þar úr og auka þægindi farþega í farþegaþotum,“ segir í einkaleyfisumsókn Airbus.

Þar segir einnig að með hjálminum fái farþegar meira næði og gæti því betur notið þeirrar afþreyingar sem í boði er. Einnig kunni meira næði að gera flughræddum farþegum auðveldara með að finna frið og slaka á. „Í öllum tilvikum ætti uppfinningin að bæta upplifun flugfarþega.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert