Kvikmynd byggð á Tetris

Kubbaleikurinn Tetris verður færður á hvíta tjaldið. En hvernig?
Kubbaleikurinn Tetris verður færður á hvíta tjaldið. En hvernig?

Framleiðandi í Hollywood ætlar að gera kvikmynd byggða á tölvuleiknum fræga, Tetris.

Leikurinn kom fyrst fram á sjónarsviðið  á níunda áratugnum og hafa því nokkrar kynslóðir notið þess að leika sér í honum.

Larry Kasanoff, framkvæmdastjóri Threshold Entertainment, hefur staðfest að kvikmynd byggð á leiknum sé nú í bígerð.

Hann segir í samtali við The Wall Street Journal að um sé að ræða „mikla og sögulega „sci-fi“-mynd.“ Fátt vildi hann segja umfram það.

Threshold Entertainment framleiddi m.a. kvikmyndina Mortal Kombat árið 1995. 

Frétt Sky um málið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert