Blóðmáninn sést ekki frá Íslandi

Blóðmáni sést næst frá Íslandi þann 28. september á næsta …
Blóðmáni sést næst frá Íslandi þann 28. september á næsta ári. mbl.is/Ómar Óskarsson

Blóðmáni, eða almyrkvi á tungli, mun sjást frá vesturhluta Norður-Ameríu, frá Kyrrahafinu, austurhluta Ástralíu og Asíu á næstu klukkustundum. Máninn sést ekki frá Íslandi að þessu sinni.

Almyrkvi á tungli verður þegar tunglið fellur inn í skuggann sem jörðin varpar á tunglið en þetta er í eina skiptið sem skuggi jarðar fellur á tunglið. Þetta gerist aðeins þegar tunglið er fullt, þ.e. þegar jörð er á milli sólarinnar og tunglsins.

Í dag er fullt tungl og verður það rétt fyrir klukkan ellefu. 

Þetta segir Sævar Helgi Bragason, formaður Stjörnuskoðarfélags Seltjarnarness og ritstjóri Stjörnufræðivefsins, í samtali við mbl.is. Blóðmáni mun næst sjást frá Íslandi þann 28. september 2015.

Rauði liturinn skýrist af ljósdreifingu, þ.e. ljós frá sólinni berst í gegnum lofthjúp frá jörðinni, dreifist og verður rautt. Ljósið fer til tunglsins, endurvarpast á yfirborðinu og þá sést ljósið frá öllum sólarupprásunum og sólsetrum jarðarinnar.

Hér má lesa meira um tunglmyrkva.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert