Um 75% af gagnaflutningum um farsímanet á Íslandi eru á vegum viðskiptavina Nova. Þetta má lesa úr tölfræðiskýrslu Póst- og fjarskiptastofnunar fyrir fyrri helming þessa árs.
Gagnaflutningar um farnetið hafa aukist hröðum skrefum og hafa því sem næst þrefaldast frá fyrri helmingi síðasta árs. Engu að síður standa Íslendingar enn Norðurlandaþjóðum að baki í þróuninni.