Snjallsjónvörp misstu vitið

Snjallsjónvörpin Smart TV frá Samsung hafa verið mikið á milli …
Snjallsjónvörpin Smart TV frá Samsung hafa verið mikið á milli tannanna á fólki undanfarið af ýmsum ástæðum. EPA

Raftækjaframleiðandinn Samsung segir að búið sé að laga bilun sem kom upp sem olli því að snjallsjónvörp hans gátu ekki tengst netinu í tvo daga. Það þýddi að ekki var hægt að nota ýmsa þjónustu í þeim eins og Netflix.

Bilunin kom upp þegar unnað var að því að uppfæra netþjón. Í tilkynningu frá Samsung kom fram að uppfærslan hafi farið fram á þriðjudagsmorgun. Í kjölfarið hafi notendur í ýmsum löndum tilkynnt um vandamál með nettengingu sjónvarpa sinna.

Vandamálið kemur beint í kjölfar vandræðalegra uppákoma fyrir Samsung. Sagt var frá því að snjallsjónvörp fyrirtækisins gætu tekið upp samtöl fólks og sent þau þriðja aðila. Þá hefur fyrirtækið hafið rannsókn á því hvers vegna sum sjónvörp hafi tekið upp á því að bæta við auglýsingu í efni sem spilað var á sjónvarpinu.

Frétt BBC af biluninni í snjallsjónvörpum Samsung

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert