Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, WHO, hvetur til þess að verulega verði dregið úr sykurneyslu, sykri sem stofnunin segir „falinn“ eða leynast í vörum allt frá gosdrykkjum til tómatsósu. WHO er nú í átaki gegn offitu jarðarbúa.
WHO hefur áður gefið út ráðleggingar þar sem fram kemur að innan við 10% hitaeininga sem fólk innbyrðir á hverjum degi eigi að koma úr sykri. Nú hvetur stofnunin hins vegar til þess að enn frekar verði dregið úr sykurneyslu og að fólk ætti ekki að neyta nema um 25 gramma af sykri, um 6 tesskeiðar, daglega. Í einni hefðbundinni gosdós eru um 10 teskeiðar af sykri.
WHO bendir á að sykur sé falinn í mörgum matvælum í formi hefðbundins strásykurs, glúkósa og ávaxtasykurs. Í viðmiðunum WHO eru ávextir undanskyldir sem og grænmeti og mjólk þar sem að engar rannsóknir sýni að neysla þeirra sé skaðleg.
Sem dæmi um falinn sykur nefnir WHO tómatsósu en í einni matskeið er að jafnaði um ein teskeið af sykri.