Fyrirtækið Unicode sér um að þróa nýja emoji (broskalla) fyrir Facebook og er nú unnið að nýrri uppfærslu sem inniheldur fjölda nýja og áhugaverða broskalla.
Í apríl á þessu ári bættust 300 nýir emojis við á Facebook. Innihélt sú uppfærsla meðal annars broskallar með mismunandi húðlit og mismunandi þjóðfána.
Microsoft og Apple eru bæði í samstarfi við Unicode. Talsmaður Apple sagði í fyrra að unnið sé að því að broskallarnir endurspegli sem best fjölbreytnina í samfélaginu.
Notendur Facebook hafa að sögn Unicode oftast óskað eftir selfie-emoji, s.s. karl sem er að taka af sér sjálfsmynd. Mun Unicode verða við þeirri ósk á næsta ári. Auk sjálfsmyndakallsins verður að finna í uppfærslunni uglu, hákarl, leðurblöku, beikon, croissant, kvenkyns jólasveinn, maður í smóking, dansandi maður, „facepalm,“ hægri og vinstri hnefi, ljúgandi broskall, slefandi andlit og trúður.