HBO sýnir nýja þætti á Facebook

Dwayne „The rock“ Johnson í nýju þáttunum Ballers.
Dwayne „The rock“ Johnson í nýju þáttunum Ballers.

Bandaríska sjónvarpsstöðin HBO birti í kvöld á Facebook fyrsta þáttinn í tveimur nýjum sjónvarpsþáttaröðum sem stöðin tekur til sýningar núna í sumar. Með þessu gerir stöðin Facebook að dreifileið fyrir sjónvarpsefni sitt, en það hefur ekki þekkst áður hjá stóru sjónvarpsstöðvunum í Bandaríkjunum.

Þættirnir Ballers og The brink verða aðgengilegir á vef Facebook í takmarkaðan tíma, en svo virðist sem þeir séu ekki í boði fyrir Íslendinga, allavega ekki sem stendur.

Aðalhlutverk í Ballers er Dwayne „The rock“ Johnson, en hann leikur amerískan fótboltaþjálfara sem er sestur í helgan stein í Flórída. Í The brink eru Jack Black og Tim Robbins í aðalhlutverkum, en HBO lýsir þáttunum sem epískum gamanþáttum með svörtum húmor sem tengist pólitískum vandamálum í Pakistan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert