Ljúka ársferð um geiminn

Scott Kelly (t.v.) og Mikhail Kornienko (t.h.) prófa geimbúninga sína …
Scott Kelly (t.v.) og Mikhail Kornienko (t.h.) prófa geimbúninga sína ásamt Sergei Volkov (f.m.).

Rússinn Mikhail Kornienko og Bandaríkjamaðurinn Scott Kelly snúa heim til jarðar frá Alþjóðlegu geimstöðinni í nótt eftir ársdvöl þar. Þó að leiðangurinn sé á enda verða þeir rannsakaðir í þaula áfram til að kanna áhrif sem langdvölin í geimnum hefur haft á þá líkamlega og andlega.

Soyuz-geimfar mun flytja tvímenningana og Rússann Sergei Volkov til jarðar en þeir lenda á sléttum Kasakstan um klukkan hálf fimm í nótt að íslenskum tíma. Volkov var í hefðbundnari leiðangri og dvaldi fimm og hálfan mánuð í geimstöðinni. Hægt er að fylgjast með lendingunni í beinni útsendingu á vef NASA í nótt.

Scott Kelly hefur tekið fjölda glæsilegra mynda af jörðinni á …
Scott Kelly hefur tekið fjölda glæsilegra mynda af jörðinni á hringsóli sínu í geimstöðinni. NASA/Scott Kelly

Kelly og Kornienko hafa dvalið í 340 daga í Alþjóðlegu geimstöðinni og þar það lengsta dvöl nokkurra geimfara þar. Þá vantar þá um hundrað daga upp á til að skáka meti Valerís Poljakov sem dvaldi í meira en 437 daga sleitulaust í MÍR-geimstöðinni frá 1994 til 1995.

Tilgangur langdvalarinnar er að kanna hvaða áhrif hún hefur á menn og lítur bandaríska geimvísindastofnun NASA á leiðangurinn sem lið í undirbúningi mannaðra ferða til Mars í framtíðinni. Eineggja tvíburabróðir Kelly, Mark sem sjálfur er fyrrverandi geimfari, tekur þátt í rannsóknunum til að bera saman heilsu þeirra.

Zinnia-blóm sem Scott Kelly ræktaði um borð í Alþjóðlegu geimstöðinni.
Zinnia-blóm sem Scott Kelly ræktaði um borð í Alþjóðlegu geimstöðinni. AFP

Á tíma sínum í geimstöðinni hafa þeir Kelly og Kornienko sé sólina „rísa“ og „setjast“ 10.944 sinnum en geimstöðin fer einn hring í kringum jörðina á um það bil níutíu mínútum. Þeir hafa ferðast rúmlega 231 milljón kílómetra á þessu tæpa ári og farið 5.440 hringi í kringum jörðina, að því er kemur fram í umfjöllun New York Times.

Dvölin var hins vegar ekki aðeins hástemmdar vísindarannsóknir. Í síðustu viku birti Kelly meðal annars myndband af sér svífandi um í górillubúning í geimstöðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert