Einar fær gullmedalíu norrænna augnlækna

Einar Stefánsson fékk gullmedalíu norrænna augnlækna nú um helgina.
Einar Stefánsson fékk gullmedalíu norrænna augnlækna nú um helgina. Ljósmynd/HÍ

Einar Stefánsson, prófessor við Háskóla Íslands og yfirlæknir á augndeild Landspítalans, tók við gullmedalíu norrænna augnlækna á þingi þeirra í Árósum nú um helgina en orðunni fylgir mesti heiður sem norrænir augnlæknar veita. Einar er fyrstur Íslendinga til að fá þessa viðurkenningu en hana fá einungis þeir sem hafa skarað fram úr í rannsóknum á augnsjúkdómum.

Einar Stefánsson, sem flutti heiðursfyrirlestur á þingi norrænu læknanna um helgina, er mikilsvirtur vísindamaður og einn sá afkastamesti við Háskóla Íslands og Landspítala, að því er segir í tilkynningu frá Háskólanum.  Rannsóknir hans hafa margsinnis orðið kveikja að nýsköpun og sprotafyrirtækjum en hann hefur ítrekað verið verðlaunaður fyrir störf sín í þágu vísinda.

Einar Stefánsson var t.d. valinn heiðursvísindamaður Landspítala fyrir fáeinum árum og haustið 2014 tók hann við sérstökum heiðursverðlaunum Danska augnlæknafélagsins fyrir afar mikilvægt framlag til rannsókna í augnlæknisfræði á alþjóðavettvangi. Hann hlaut heiðursverðlaun Ásu Guðmundsdóttir Wright fyrir árið 2008 en sama ár hlaut hann svokölluð Jules Gonin-verðlaun. Þau eru ein merkustu verðlaun sem veitt eru í heiminum á sviði augnlæknisfræði, að því er segir í tilkynningunni.  Jules Gonin-verðlaunin eru veitt annað hvert ár þeim einstaklingum í heiminum sem þykja hafa staðið sig öðrum framar í augnrannsóknum og lækningum, sérstaklega á sviði sjónhimnusjúkdóma.

Einar Stefánsson er mjög kunnur á alþjóðavettvangi fyrir störf sín. Hann er meðhöfundur að meira en 200 ritgerðum í virtum ritrýndum vísindatímaritum og höfundur um 400 ritverka og útdrátta um augnlækningafræði. Hann er einnig í hópi afkastamestu frumkvöðla Háskóla Íslands.

Norræna gullmedalían, sem Einar hlaut um helgina, var fyrst veitt árið 1931 og hefur verið veitt á þingum norrænna augnlækna með hléum. Tíu augnlæknar og vísindamenn fengu orðuna fram til 1977, en síðan hefur hún verið veitt annað hvert ár. 

Einar Stefánsson.
Einar Stefánsson. Ljósmynd/HÍ
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert